NÝJUSTU FRÉTTIR

Sjóorrustuleikur í sumarblíðu

Stærðfræðitíminn var tekinn úti við í morgun. Nemendur í 6. bekk settu upp leik sem heitir sjóorustuleikurinn í stærðfræðibækurnar sínar sem gengur út á að læra á hnitakerfið í stærðfræði.  

Lesa meira

Velferðarkennsla í Snælandsskóla hlýtur viðurkenningu menntaráðs

Í dag voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi þróunarverkefni í grunnskólum Kópavogs, viðurkenningar sem kallast Kópurinn. Soffía Weisshappel hlaut viðurkenningu fyrir kennslustundirnar Karakter á unglingastigi þar sem hún fléttar saman jákvæða sálfræði, námstækni, forvarnir og allt sem snýr að velferð og vellíðan. […]

Lesa meira

BÓKASAFNSRÁÐGÁTAN

Lestrarverkefni á miðstigi: Bók hefur horfið af bókasafni skólans.Til að finna bókina þarf að leysa ráðgátu. Lesnir voru ýmsir textar og fengu nemendur á hverjum degi spurningar úr textunum. Svarið við spurningunum þurfti síðan að sannreyna með því að opna lás […]

Lesa meira

Dýrin Í Hálsaskógi

Nemendur í 3. bekk á yngsta stigi sýndu söngleikinn Dýrin í Hálsaskógi á sal skólans í gær og í dag fyrir nemendur, starfsfólk og foreldra. Þetta sígilda barnaleikrit hefur góðan boðskap um vináttu og tillitsemi, sem snýst um að öll dýrin […]

Lesa meira

Kynning frá Skólahljómsveit Kópavogs

Í dag þriðjudaginn 4. maí komu Jóhann Björn og Sigurjón frá skólahljómsveit Kópavogs með nemendur úr Snælandsskóla og kynntu starf hljómsveitarinnar og hljóðfærin sem hægt er að fá að læra á. Þessi kynning er haldin árlega fyrir 3. bekkinga sem geta […]

Lesa meira

Útikennsla í dönsku

Í morgun var dönskukennslan úti í blíðviðrinu og voru nemendur að æfa munnlega dönsku. Verkefnið heitir „Hverjir eru framtíðardraumar þínir“.  Nemendur sátu á móti hvor öðrum og spjölluðu á dönsku og færðu sig síðan til hliðar til að tala við næsta […]

Lesa meira

Matseðill fyrir maí

Grænmetis- og ávaxtabar með öllum máltíðum Matseðillinn getur breyst án fyrirvara Smellið á linkinn hér fyrir neðan til að sjá matseðilinn.   https://snaelandsskoli.is/wp-content/uploads/sites/9/2022/04/Matsedill.-Mai.-2022.pdf  

Lesa meira

Menntabúðir

Menntabúðir í Snælandsskóla voru haldnar í skólanum í gær fyrir kennara í Kópavogi og víðar, með áherslu á að kynna nýja kennsluhætti sem teknir voru upp í skólanum í vetur. Eitt verkefnanna gengur undir nafninu Flæði og snýr að þemavinnu á […]

Lesa meira

Umhverfisdagurinn

Hinn árlegi Umhverfisdagur  var haldinn hátíðlegur á í dag. Þetta er skv. skóladagatali uppbrotsdagur þannig að fyrstu 4 kennslustundir dagsins voru nemendur ekki í tímum skv. stundaskrá heldur að vinna þvert á skólann. Að þessu sinni unnu vinabekkir saman að umhverfisverkefnum. […]

Lesa meira