Skip to content
Samkóp eru samtök foreldrafélaga í Kópavogi.
Markmið samtakanna eru:
- Að standa vörð um réttindi barna til menntunar og þroska
- Að beita sér fyrir auknum áhrifum foreldra á skólastarf
- Að stuðla að skipulegu samstarfi aðildarfélagannna
- Að vera sameiginlegur málsvari foreldra gagnvart sveitarfélagi og stjórnvöldum
- Að fylgjast með framkvæmd grunnskólalaga og aðalnámskrár og beita sér fyrir umbótum í skólastarfi
- Að afla reglulega upplýsinga um starf foreldrafélaga og miðla þeim
- Að stuðla að opinberri umræðu um skóla- og uppeldismál, m.a. með ársþingum, félagsfundum, málþingum, ráðstefnum, greinaskrifum og myndun starfshópa
- Að starfa með öðrum samtökum og félögum sem sinna málefnum barna og foreldra á Íslandi og í nálægum löndum.