Námsráðgjöf

Hlutverk námsráðgjafa

Hlutverk námráðgjafa er að standa vörð um velferð allra nemenda skólans, styðja þá og hjálpa í þeim málum er snerta nám, skólavist, framhaldsnám, starfsval og persónuleg málefni. Námsráðgjafi er málsvari nemenda innan skólans.

Kallý Jónsdóttir er námsráðgjafi skólans, hún er staðsett í E álmu skólans.

Nemendur eru alltaf velkomnir til námsráðgjafa og þurfa ekki að panta tíma. Einnig geta foreldrar og nemendur haft samband með tölvupósti eða í síma 4414328.

Helstu verkefni námsráðgjafa eru eftirfarandi:

  • Persónuleg ráðgjöf
  • Hópráðgjöf
  • Samskipti
  • Námstækni
  • Undirbúa nemendur undir flutning milli skóla/skólastiga
  • Ráðgjöf um framhaldsnám
  • Áhugasviðskannanir
  • Vinna að forvörnum í samvinnu við aðra starfsmenn skólans

Allt sem nemendur eða foreldrar vilja ræða við námsráðgjafa er í fullum trúnaði!