Öskudagsgleði

Öskudagur var haldinn hátíðlegur einsog alltaf í Snælandsskóla. Yngsta stigið hittist í stofum hjá umsjónarkennurum, léku með dótið sitt, spiluðu, fóru í leiki, Kahoot, „Just Dance“ og fleira. Einn árgangur í einu á yngsta stigi fór síðan í gamla íþróttasalinn þar sem var dansað, sprellað og kötturinn sleginn úr tunnunni undir stjórn Júlíu og Alla íþróttakennara. Miðstigsstigið tók þátt í fótboltamóti í Fagralundi. Unglingastigið hittist í stofum hjá umsjónarkennurum þar sem var spilað, farið í leiki, Kahoot og einnig var farið í salinn og dansað „Just Dance“. Síðan fór hver árgangur á unglingastiginu í félagsheimilið Igló þar sem farið var í leiki og sprellað að hætti Brodda og Vigdísar kennara. Í lok dags voru nemendur leystir út með nammipoka í boði foreldrafélagsins.

Posted in Fréttaflokkur.