
Matseðill fyrir febrúar
Grænmetis- og ávaxtabar með öllum mat. Matseðillinn getur breyst án fyrirvara
Grænmetis- og ávaxtabar með öllum mat. Matseðillinn getur breyst án fyrirvara
Nemendur í 1. bekk fóru í ævintýraferð í Asparlund. Allir voru með vasaljós og var leitað eftir álfum. Í Asparlundi var hlustað á söguna um Borghildi álfkonu. Þegar kveikt var á blysi og krakkarnir sungu „Stóð ég úti í tungsljósi „birtist […]
Kristín Jónsdóttir eldfjalla- og jarðskjálftafræðingur og móðir barns í 5. bekk var með fyrirlestur í morgun fyrir nemendur í 5. bekk í sal skólans. Kristín fjallaði um eldfjöll, jarðhræringar og veðurstofuna. Nemendur voru mjög áhugasamir og margar spurningar dundu á henni. […]
Grænmetis- og ávaxtabar með öllum máltíðum Matseðillinn getur breyst án fyrirvara
Snælandsskóli sendir þér og þínum hugheilar jólakveðjur með kæru þakklæti fyrir árið sem er að líða. Sjáumst 3. janúar á nýju ári.
Jólaböll voru haldin í Snælandsskóla í dag undir stjórn Brodda, Margrétar Örnu, Margrétar R og Margrétar G Th. Hver árgangur mætti á ákveðnum tíma í Igló með sínum umsjónarkennara og dansaði í kringum tréð. Síðan fengu nemendur hátíðarmat. Nemendur og starfsfólk […]
Jólahurðaskreytingakeppni Snæló var haldin í annað sinn. Dómnefnd skipuðu Magnea skólastjóri og Agnes sérkennari sem gengu um skólann og kváðu upp sinn dóm. Hurð E4(9. bekkur) og C3 (4. bekkur) hlutu saman 1. sætis verðlaun og báru sigur úr býtum í […]
Foreldrafélag Snælandsskóla kom færandi hendi með veitingar fyrir starfsfólk skólans. Með ósk um gleðileg jól og þakkir.
Unglingarnir hlustuðu á upplestur í morgun á sal skólans úr bók Hallgríms Helgasonar Koma jól? Guðmunda las fyrir allt unglingastigið þessi skemmtilegu ljóð sem kveðast á við um bókina Jólin koma eftir Jóhannes úr Kötlum.
Nemendum í 1. – 4. bekk ásamt umsjónarkennurum er boðið á kaffihúsið. Unglingarnir lesa jólasögu fyrir gestina og bera fram kakó og engiferkökur sem bakaðar hafa verið í heimilisfræði. Þetta er notaleg stund á aðventu. Þetta er samvinnuverkefni heimilisfræði og skólasafns.