Gul veðurviðvörun

Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun á höfuðborgarsvæðinu frá kl. 09:00-16:00 í dag.

Mikilvægt er að foreldrar fylgist með nýjustu veðurspám á vedur.is þar sem þær geta breyst hratt án þess að þær verði uppfærðar á heimasíðu skólans.

 

Við biðjum foreldra að kynna sér leiðbeiningar frá almannavarnanefnd en þar kemur m.a. fram að forsjáraðilar meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum í eða úr skóla eða frístundastarfi, forsjáraðilar þurfa að hafa í huga að einhver röskun getur orðið á skólastarfi vegna veðurs ef það tefst að fullmanna skólann.

Mikilvægt er að forsjáraðilar hafi einnig í huga að röskun getur einnig orðið á frístundastarfi og skipulögðum æfingum í lok skóladags og þurfa þeir að fylgjast með tilkynningum frá íþróttafélögum vegna þess og sækja þá börn í skólann eða frístund ef íþróttastarf eða aðrar tómstundir falla niður.

 

Ef foreldrar óska eftir því að þeirra börn verði EKKI send sjálf heim eða með tómstundarútu þá þarf að hafa samband við ritara eða Frístund, eftir því hvaðan þau eiga að fara, og láta starfsfólk vita af því.

 

Leiðbeiningar frá almannavarnanefnd https://vefur.shs.is/wp-content/uploads/2021/08/ALM-vedurbaeklingur-forsjaradilar-IS.pdf

Leiðbeiningar á ensku https://vefur.shs.is/wp-content/uploads/2021/09/ALM-vedurbaeklingur-forsjaradilar-EN.pdf

Leiðbeiningar á pólsku https://vefur.shs.is/wp-content/uploads/2021/09/ALM-vedurbaeklingur-forsjaradilar-PO.pdf

Posted in Fréttaflokkur.