NÝJUSTU FRÉTTIR

Gleðilegt sumar!

Starfsfólk Snælandsskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars og þakkar samstarfið á liðnu skólaári. Við hlökkum til að sjá ykkur hress og endurnærð næsta haust! Skrifstofa skólans verður lokuð frá 20. júní til 5. ágúst.

Lesa meira

Skólaslit 1.–9. bekkja fóru fram í dag

Í dag fóru fram skólaslit hjá 1.–9. bekk. Brynjar Marinó skólastjóri kvaddi nemendur með hlýjum og hvetjandi orðum út í sumarið. Kristín Pétursdóttir, deildarstjóri yngsta- og miðstigs, stýrði afhendingu vitnisburðar í sal skólans, þar sem nemendur komu hver af öðrum og […]

Lesa meira

Útskriftarhátíð 10. bekkja

Glæsileg útskriftarhátíð 10. bekkja  fór fram í Snælandsskóla þann 6. júní  þar sem nemendur, foreldrar og starfsfólk komu saman til að fagna lokum skólaársins og útskrift nemenda. Hátíðin hófst á fallegri tónlistaratriði þar sem Ágústa Birna flutti ljúfan flautuleik á þverflautu […]

Lesa meira

Skemmtileg Vorhátíð í Snælandsskóla

Vorhátíð Snælandsskóla í boði foreldrafélagsins fór fram föstudaginn 6. júní við frábærar aðstæður. Dagskráin hófst með tónlistarflutningi frá Skólahljómsveit Kópavogs áður en nemendur tóku þátt í skólahlaupi undir stjórn Brodda og Alla kennara. Að hlaupinu loknu beið nemenda fjölbreytt dagskrá með […]

Lesa meira

Skemmtilegur leikjadagur í skólanum

Í síðustu viku voru haldnir Mikka- og Mínuleikar fyrir 1.–3. bekk og Vorleikar fyrir 4.–6. bekk, auk þess sem 7.–9. bekkur tók þátt í körfuboltamóti í Fagralundi. Nemendur 1.–3. bekkjar tóku þátt í fjölbreyttum stöðvum á skólalóðinni, þar sem meðal annars […]

Lesa meira

Vorhátíð

Föstudaginn 6. júní verður vorhátíð foreldrafélagsins haldin við Snælandsskóla.   Foreldrum velkomið að líta við og fylgjast með meðan dagskrá er.

Lesa meira

Snælandsskóli hlýtur Kópinn fyrir framúrskarandi skólastarf

Kópurinn, viðurkenning menntaráðs Kópavogs fyrir framúrskarandi grunnskóla- og frístundastarf, var veittur Snælandsskóla við hátíðlega athöfn í Salnum þann 22. maí. Alls bárust 19 tilnefningar til menntaráðs, fimm verkefni hlutu viðurkenningu fyrir að stuðla að umbótum og framþróun í skóla- og frístundastarfi. […]

Lesa meira

Vorferðir

Vorferðir hafa sett svip sinn á starfsemi Snælandsskóla að undanförnu. Nemendur allra bekkja hafa farið í fjölbreyttar og skemmtilegar ferðir: 1. bekkur heimsótti Hraðastaði 2. bekkur fór á Hvalasafnið 3. bekkur fóru í Miðdal í Kjós 4. bekkur heimsótti Þjóðminjasafnið 5. […]

Lesa meira