Skemmtilegur leikjadagur í skólanum

Í síðustu viku voru haldnir Mikka- og Mínuleikar fyrir 1.–3. bekk og Vorleikar fyrir 4.–6. bekk, auk þess sem 7.–9. bekkur tók þátt í körfuboltamóti í Fagralundi.

Nemendur 1.–3. bekkjar tóku þátt í fjölbreyttum stöðvum á skólalóðinni, þar sem meðal annars var boðið upp á fótbolta, kassabíla, hreyfileiki, pókó, krítarteikningar og slönguspil.

4.–6. bekkur naut sín á Vorleikunum með fjölbreyttum útileikjum á strandblaksvellinum og leikvellinum við aparóluna. Þar var m.a. að finna pútt, blak, ringó, keilur, hindranabrautir, skotbolta, frisbí og fleiri skemmtilega stöðvar.

7.–10. bekkur tók þátt í spennandi körfuboltamóti sem haldið var í Fagralundi.

Mikil gleði og þátttaka einkenndi daginn og voru nemendur ánægðir með þessa frábæru leikjadaga!

Posted in Fréttaflokkur.