Í dag fóru fram skólaslit hjá 1.–9. bekk. Brynjar Marinó skólastjóri kvaddi nemendur með hlýjum og hvetjandi orðum út í sumarið. Kristín Pétursdóttir, deildarstjóri yngsta- og miðstigs, stýrði afhendingu vitnisburðar í sal skólans, þar sem nemendur komu hver af öðrum og tóku á móti vitnisburði vetrarins.
Nemendur í 8. og 9. bekk héldu í heimastofur sínar með umsjónarkennurum sínum og fengu þar vitnisburðinn afhentan. Þetta er ávallt hátíðleg stund, þar sem nemendur kveðja kennarana sína og taka fyrstu skrefin inn í sumarfríið.
Sérlega ánægjulegt var að sjá hve margir foreldrar mættu með börnum sínum og tóku þátt í þessari fallegu stund.