Vorhátíð Snælandsskóla í boði foreldrafélagsins fór fram föstudaginn 6. júní við frábærar aðstæður. Dagskráin hófst með tónlistarflutningi frá Skólahljómsveit Kópavogs áður en nemendur tóku þátt í skólahlaupi undir stjórn Brodda og Alla kennara.
Að hlaupinu loknu beið nemenda fjölbreytt dagskrá með stöðvum um alla skólalóð. Þar mátti finna karókí, skák, andlitsmálun, pókó, körfubolta, hoppukastala, hjólabraut og búbblubolta – eitthvað við allra hæfi. Einnig voru haldnar sýningar frá Leikhópnum Lottu og BMX hjólasýning sem vakti mikla lukku.
Hátíðinni lauk með árlegum fótboltaleik milli kennara og nemenda í 10. bekk og pylsum í boði foreldrafélagsins. Vorhátíðin tókst með eindæmum vel og var gleðin allsráðandi allan daginn.