Vorferðir

Vorferðir hafa sett svip sinn á starfsemi Snælandsskóla að undanförnu. Nemendur allra bekkja hafa farið í fjölbreyttar og skemmtilegar ferðir:

  • 1. bekkur heimsótti Hraðastaði

  • 2. bekkur fór á Hvalasafnið

  • 3. bekkur fóru í Miðdal í Kjós

  • 4. bekkur heimsótti Þjóðminjasafnið

  • 5. bekkur fór á Akranes

  • 6. bekkur heimsótti Þingvelli

  • 7. bekkur tók þátt í ratleik í Reykjavík

  • 8. bekkur fór til Sandgerðis, heimsótti Þekkingarsetrið og Garðskagavita

  • 9. bekkur tók þátt í ratleik í Guðmundarlundi í Kópavogi

  • 10. bekkur naut skemmtilegrar stundar í skólanum með glæsilegum morgunverði sem var í boði fyrir hópinn

Ferðirnar hafa verið bæði fræðandi og skemmtilegar og skapað góðar minningar í lok skólaársins.

IMG_1520 IMG_1519

Posted in Fréttaflokkur.