Kópurinn, viðurkenning menntaráðs Kópavogs fyrir framúrskarandi grunnskóla- og frístundastarf, var veittur Snælandsskóla við hátíðlega athöfn í Salnum þann 22. maí. Alls bárust 19 tilnefningar til menntaráðs, fimm verkefni hlutu viðurkenningu fyrir að stuðla að umbótum og framþróun í skóla- og frístundastarfi.
Guðmunda Hrönn Guðlaugsdóttir, kennari við bókasafn skólans, var sérstaklega heiðruð fyrir verkefnið Lestrarhagkerfi bókasafnsins. Lestrarátakið, sem nefnist „Lesum saman – allir græða“, er ætlað nemendum í 1.–4. bekk og hefur vakið mikla lukku. Nemendur lesa bækur og fá í staðinn „kalla“ sem þeir geta notað til að versla ýmis konar varning í sjoppu skólans. Á safninu starfar einnig Magnús Kjartansson og hefur hann tekið virkan þátt í verkefninu.
Verkefnið hefur eflt lestur og aukið áhuga nemenda á bókmenntum með skapandi og hvetjandi hætti.