Stelpur, stálp og tækni dagurinn haldinn í tólfta sinn á Íslandi

Þann 23. maí 2025 fór fram viðburðurinn Stelpur, stálp og tækni í tólfta sinn á Íslandi. Viðburðurinn er haldinn af Háskólanum í Reykjavík í samstarfi við Ský – Skýrslutæknifélag Íslands – og er liður í því að hvetja stúlkur og ungar konur til náms og starfa í tæknigreinum.

Markmið dagsins er að efla áhuga stelpna og stálpa í 9. bekk á upplýsingatækni og skyldum greinum, með því að bjóða þeim í heimsókn í háskólann og valin tæknifyrirtæki. Á hverju ári hefur viðburðurinn notið mikilla vinsælda og er alltaf vel sóttur.

Í ár heimsóttu nemendur úr Snælandsskóla meðal annars Landsvirkjun, þar sem þeir fengu fræðandi fyrirlestur frá kvenkyns stjórnendum fyrirtækisins. Einnig komu þau í heimsókn í Háskólann í Reykjavík, þar sem þau fengu kennslu í tæknigreinum og innsýn í fjölbreytta möguleika framtíðarinnar í heimi upplýsingatækni.

Posted in Fréttaflokkur.