NÝJUSTU FRÉTTIR

Rithöfundur í heimsókn
Við fengum rithöfundinn Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur í heimsókn fyrir ynsta stigið. Hún las upp úr einni af bókinni sinni, Langelstur að eilífu. Bergrún Íris útskýrði hvernig bækur verða til og talaði um myndlýsingar og starf barnabókahöfundarins. Gaman að sjá hvað krakkarnir […]

Jólamatur í hádeginu
Jólamatur og kræsingar voru á boðstólum fyrir nemendur skólans, kennara og starfsfólk. Boðið var upp á svínahamborgarhrygg og gott meðlæti. Allir fengu svo ís í eftirrétt. Jólatónlist og eintóm gleði hjá nemendum og starfsfólki þessa notalegu aðventustund.

Rithöfundur í heimsókn
Við fengum rithöfundinn Arndísi Þórarinsdóttur í heimsókn í morgun fyrir unglingastigið. Hún las upp úr nýútkominni bók sinni, Kollhnís, þar sem boðskapurinn er skýr og minnir okkur á að gefast ekki upp. Einnig fór hún yfir hvernig ferlið getur verið fyrir […]

Jólaföndur hjá 1. og 6. bekk saman
Jólaandinn sveif yfir vötnum hjá 1. og 6. b. sem föndruðu saman í gær. Gaman að sjá hversu natin eldri eru við þau yngri. Þetta er liður í að efla samskipti milli vináttubekkja.

Aðventudagskrá í Snælandsskóla
Hér má sjá dagskrá yfir helstu viðburði í desember. https://snaelandsskoli.is/wp-content/uploads/sites/9/2022/12/Desemberdagskra2022-002.pdf

Fótboltamót miðstigs
Þann 9.des var haldið fótboltamót á miðstigi. Mikið fjör var á leikunum og flestir tóku þátt. Leikar fóru þannig að nemendur í 7.bekk unnu mótið. Það voru stelpurnar sem nefndu sig England og strákarnir Spánn sem unnu. Veitt voru hvatningarverðlaun sem […]

Barnaheill og Krakkarúv í heimsókn
Þriðju bekkingar fengu skemmtilega gesti í heimsókn í morgun frá Barnaheill og Krakkarúv. Þau voru að fylgjast með nemendum horfa á öðruvísi Jóladagatal frá Barnaheill og spyrja þau um Barnasáttmálann. Með þeim í för voru upptökumenn frá Krakkarúv sem mynduðu og […]

Jólakaffihús á bókasafninu
Nemendum í 1.-4. bekk ásamt umsjónarkennurum er boðið á jólakaffihús á bókasafni skólans. Unglingarnir lesa jólasögu fyrir nemendur og bera fram kakó og engiferkökur sem bakaðar hafa verið í heimilisfræði. Þetta er notaleg stund á aðventunni.

Hour of code, forritað með vinabekkjum
Hour of Code, þar sem forritað var með vinabekkjum, var haldinn í skólanum 6. desember. Áherslan var lögð á árlegu þátttöku okkar í Hour of Code, að forrita í klukkustund. Það voru eldri nemendur sem kenndu þeim yngri. Snælandsskóli skráir sig […]

Á döfinni
Það er ekkert á döfinni