Gul veðurviðvörun

Í gildi er gul veðurviðvörun á höfuðborgarsvæðinu. Mikilvægt er að foreldrar fylgist með nýjustu veðurspám á vedur.is þar sem þær geta breyst hratt án þess að þær verði uppfærðar á heimasíðu eða facebook síðu skólans.

Við biðjum foreldra að kynna sér leiðbeiningar frá almannavarnanefnd en þar kemur m.a. fram að forsjáraðilar meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum í skóla.

 

Leiðbeiningar frá almannavarnanefnd https://vefur.shs.is/wp-content/uploads/2023/02/ALM-vedurbaeklingur-forsjaradilar-IS-011122.pdf

Leiðbeiningar á ensku https://vefur.shs.is/wp-content/uploads/2023/02/ALM-vedurbaeklingur-forsjaradilar-EN-241122.pdf

Leiðbeiningar á pólsku https://vefur.shs.is/wp-content/uploads/2023/02/ALM-vedurbaeklingur-forsjaradilar-PL-241122.pdf

Posted in Fréttaflokkur.