NÝJUSTU FRÉTTIR

Rithöfundur í heimsókn

Við fengum rithöfundinn Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur í heimsókn fyrir ynsta stigið.  Hún las upp úr einni af bókinni sinni, Langelstur að eilífu. Bergrún Íris útskýrði hvernig bækur verða til og talaði um myndlýsingar og starf barnabókahöfundarins. Gaman að sjá hvað krakkarnir […]

Lesa meira

Jólamatur í hádeginu

Jólamatur og kræsingar voru á boðstólum fyrir nemendur skólans, kennara og starfsfólk. Boðið var upp á svínahamborgarhrygg og gott meðlæti. Allir fengu svo ís í eftirrétt. Jólatónlist og eintóm gleði hjá nemendum og starfsfólki þessa notalegu aðventustund.  

Lesa meira

Rithöfundur í heimsókn

Við fengum rithöfundinn Arndísi Þórarinsdóttur í heimsókn í morgun fyrir unglingastigið. Hún las upp úr nýútkominni bók sinni, Kollhnís, þar sem boðskapurinn er skýr og minnir okkur á að gefast ekki upp. Einnig fór hún yfir hvernig ferlið getur verið fyrir […]

Lesa meira

Fótboltamót miðstigs

Þann 9.des var haldið  fótboltamót á miðstigi. Mikið fjör var á leikunum og flestir tóku þátt. Leikar fóru þannig að nemendur í 7.bekk unnu mótið. Það voru stelpurnar sem nefndu sig England og strákarnir Spánn sem unnu. Veitt voru hvatningarverðlaun sem […]

Lesa meira

Barnaheill og Krakkarúv í heimsókn

Þriðju bekkingar fengu skemmtilega gesti í heimsókn í morgun frá Barnaheill og Krakkarúv. Þau voru að  fylgjast með nemendum horfa á öðruvísi Jóladagatal frá Barnaheill og spyrja þau um Barnasáttmálann. Með þeim í för voru upptökumenn frá Krakkarúv sem mynduðu og […]

Lesa meira

Jólakaffihús á bókasafninu

Nemendum í 1.-4. bekk ásamt umsjónarkennurum er boðið á jólakaffihús á bókasafni skólans. Unglingarnir lesa jólasögu fyrir nemendur og bera fram kakó og engiferkökur sem bakaðar hafa verið í heimilisfræði. Þetta er notaleg stund á aðventunni.    

Lesa meira

Hour of code, forritað með vinabekkjum

Hour of Code, þar sem forritað var með vinabekkjum, var haldinn í skólanum 6. desember. Áherslan var lögð á árlegu þátttöku okkar í Hour of Code, að forrita í klukkustund. Það voru eldri nemendur  sem kenndu þeim yngri. Snælandsskóli skráir sig […]

Lesa meira