Spurningakeppnin Sagan öll

Síðustu vikur hafa unglingarnir okkar verið að undirbúa sig fyrir keppnina, Sagan öll, undir stjórn Berglindar Bragadóttur kennara.  Lokakeppni í spurningakeppninni fór fram í morgun. Tvö lið voru í úrslitum, tveir hópar í 10. bekk , þau Andrea, Guðný, Hildur Bella, Óskar og Þórunn og í hinu liðinu þær Arndís, Guðrún, Margrét og Þóra . Stigavörður var Björn Gunnarsson kennari og Anna Sigrún Jónsdóttir kennari tímavörður. Andrea, Guðný, Hildur Bella, Óskar og Þórunn  sigruðu keppnina. Innilega til hamingju!

Veitt voru verðlaun fyrir 1.- 4 sæti.

Fyrsta sæti : Andrea, Guðný, Hildur Bella, Óskar og Þórunn –  10. bekk

Annað sæti : Arndís, Guðrún, Margrét og Þóra –  10 bekk

Þriðja sæti: Arey, Hrafnhildur, Kristín Edda, Kristín Emelia og Nína – 8. Bekk

Fjórða sæti: Daníel Ingi, Halldór, Ísak, Kristinn og Patrekur 10. Bekk. (Kristinn vantar á myndina)

 

Posted in Fréttaflokkur.