Líf og fjör í líffræði!

Nemandi á unglingastigi kom færandi hendi hér um daginn. Hafði honum tekist að fanga við heimili sitt dálitla húsamús í krukku. Hún hefur nú flutt í mun hentugra húsnæði (fiskabúrið) og býr þar við gott atlæti nemenda. Von er á að fleiri mýslur bætist í hópinn á næstunni og munu búa í skólanum í nokkra daga áður en þær snúa aftur til síns heima. Að vonum vakti þessi heimsókn mikla lukku og margir komið í heimsókn í E2.

Björn Gunnarsson kennari

 

Posted in Fréttaflokkur.