Klifurveggurinn klár

Í gær kláraðist vinna við klifurvegginn hjá okkur. Það má búast við spennu í kringum hann fyrst um sinn en vonandi vekur hann lukku hjá sem flestum. Litagleðin á hand- og fótstigum er ekki bara til skrauts heldur er hægt að gera sér klifrið miserfitt með því t.d. að klifra bara eftir bláum lit eða nota bara bleikan o.s.frv. Þökkum öllum sem komu að gerðinni, sérstaklega Hlín og Cécile fyrir að halda utan um alla vinnuna, enda er veggurinn sjálfur líka mikil prýði og vel heppnaður.

Posted in Fréttaflokkur.