NÝJUSTU FRÉTTIR
Skemmtilegt fuglaverkefni í 4. bekk
Í 4. bekk er skemmtilegt fuglaverkefni í gangi. Þar er farið yfir algengustu fuglana og æviskeið þeirra. Hver nemandi dregur ákveðinn fugl sem síðan er unnið með, teiknaðar myndir og staðreyndir skrifaðar um útlit og einkenni. Í framhaldinu gera þau sögu […]
Lesum saman 15. febrúar til 7. mars
Hið árlega lestrarverkefni á yngsta stigi, Lesum saman, korter á dag verður 15. febrúar til 7. mars. Um er að ræða samvinnuverkefni skóla og heimila Þemað í ár er „Allir græða á að lesa!“ Gjaldmiðillinn „kallar“ er gefinn út af Snælandsbankanum. […]
Vetrarfrí 19. og 20. febrúar
Vetrarfrí verður í skólanum næsta mánudag 19. febrúar og þriðjudag 20. febrúar. Fjölskyldudagskrá verður á vegum bæjarins. Fjölskyldudagskrá í Vetrarfríi, 19. og 20. febrúar febrúar 11:00 | Bíósýning: Múlan (Bókasafn Kópavogs, 3. hæð) 13:00 | Origami-smiðja (Bókasafn Kópavogs, 3. hæð) 15:00 […]
Öskudagsgleði
Öskudagur var haldinn hátíðlegur einsog alltaf í Snælandsskóla. Yngsta stigið hittist í stofum hjá umsjónarkennurum, léku með dótið sitt, spiluðu, fóru í leiki, Kahoot, „Just Dance“ og fleira. Einn árgangur í einu á yngsta stigi fór síðan í gamla íþróttasalinn þar […]
Áttundu- og níundubekkingar taka þátt í stærðfræðikeppni
Í Snælandsskóla taka 8. og 9. bekkingar þátt í Pangea stærðfræðikeppni. Heiðar Þór Jónsson, Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Brynja Áslaug Sigurðardóttir, stærðfræðikennarar, hafa umsjón með keppninni í skólanum. Hún er fyrir alla nemendur þessara bekkja grunnskóla landsins. Á heimasíðu Pangea segir: […]
Heilsudagur 15. febrúar
Allir nemendur skólans taka með sér næringarríkan mat til þess að setja á hlaðborð fyrir bekkjarfélaga í nestistíma. Minnum á að skólinn er hnetulaus.
Á skíðum og skautum
Öflugur hópur á íþróttabraut undir leiðsögn kennaranna Helgu Bjarkar Árnadóttur og Jóhönnu Hjartardóttur fengu að kynnast vetraríþróttum og skelltu sér á skauta í Laugardal og skíði í Bláfjöllum. Færið í Bláfjöllum var með besta móti en kalt í veðri en allir […]
Þrír nemendur vinna að stuttmynd með RÚV
Þrír nemendur í sjötta bekk, þær Erla Máney, Heiðbjörg Anna og Rúna, eru höfundar að baki vinningsatriðis í söguverkefni KrakkaRÚV. Þær gerðu handrit að stuttmynd í íslenskutíma sem heitir Óskahálsmenið. Á næstunni fara þær ásamt foreldrum að hitta teymi frá Ríkisútvapinu […]
Freyr Eyjólfsson ræddi hringrásarhagkerfið við unglingastigið
Í morgun kom Freyr Eyjólfsson frá Sorpu í skólann og ræddi um flokkun og umhverfismál við unglingastigið í hátíðarsalnum. Freyr er þar þróunarstjóri Hringrásarhagkerfisins. „Hringrásarhagkerfið snýst um að nota auðlindir jarðarinnar betur og lengur. Fara ekki illa með verðmætin okkar. Vera […]
Á döfinni
-
Uppbrotsdagur/ Dagur mannréttinda barna
Miðvikudagur, 20 nóvember 2024
meiri upplýsingar