NÝJUSTU FRÉTTIR
Matseðill fyrir febrúar
Grænmetis- og ávaxtabar með öllum máltíðum Matseðillinn getur breyst án fyrirvara Smellið hér til að sjá matseðla fyrir janúar.
Öryggi barna í bíl
Við minnum á mikilvægi um öryggi barna í bíl og á fræðslumyndbönd og bæklinga sem Samgöngustofan hefur gefið út og eru til á nokkrum tungumálum og fjalla um það. Hér er hlekkur á síðunna okkar þar sem hægt er að […]
Úrslit í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs
Inga Bríet Valberg nemandi í 5. bekk Snælandsskóla hlaut önnur verðlaun fyrir ljóðið Ég og hún í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs. Ég og hún Ég geng með fjölskyldunni um mosi vaxið hraunið í mildu haustveðrinu. Ég horfi á tunglið […]
“Frk. Skelegg!”
Fyrsta kennsludag ársins 2024 barst Náttúrufræðisviði Snælandsskóla kærkominn liðsauki! Þá hóf störf í E4 nýr aðstoðarkennari, frk. Skelegg að nafni. Nemedur í 9. bekk tóku nýliðanum opnum örmum, buðu velkoma og lögðu línurnar með henni! Björn Gunnarsson náttúrufræðikennari
Matseðlar fyrir janúar
Grænmetis- og ávaxtabar með öllum máltíðum Matseðillinn getur breyst án fyrirvara Smellið hér til að sjá matseðla fyrir janúar.
Gleðileg jól
Skóli hefst að nýju miðvikudaginn 3. janúar kl. 10:00. Byrjað verður á því að ganga á mót hækkandi sól í Fossvogsdalnum og því þurfa nemendur að koma klæddir eftir veðri. Að því loknu hefst kennsla skv. stundatöflu. Gleðileg jól og farsælt […]
Söngstund á sal
Í morgun var notaleg söngstund í anda jólanna sem Margrét Thoroddsen söngkennari stýrði á á sal með hverju stigi fyrir sig. Þar sungu nemendur og starfsfólk með sínu nefi skemmtileg jólalög sem birtust á skjánum.
Jólakaffihús á bókasafninu
Í vikunni var nemendum í 1.-4. bekk ásamt umsjónarkennurum boðið á jólakaffihús á bókasafni skólans. Unglingarnir lásu jólasögu fyrir nemendur og báru fram kakó og engiferkökur sem bakaðar hafa verið í heimilisfræði. Þetta var notaleg stund á aðventunni. Þetta er árvisst […]
Hour of Code, forritað með vinabekkjum
Í dag var árlegt Hour of Code í skólanum þar sem forritað er með vinabekkjum í eina klukkustund. Eldri nemendur kenndu þeim yngri. Snælandsskóli skráir sig til þátttöku á hverju ári. Klukkustund kóðunar (Hour of Code) er ókeypis kynning á tölvunarfræði […]
Á döfinni
-
Verkalýðsdagurinn
Miðvikudagur, 01 maí 2024
meiri upplýsingar