Nýir nemendur í 2.-10. bekk fá boð um að mæta í skólann áður en skólasetning verður til að hitta umsjónarkennara.
Skólasetning verður mánudaginn 25. ágúst, frístund er lokuð þann dag. Mæting árganga er sem hér segir:
Kl. 8:30 2. og 3. bekkur, námskynning fyrir foreldra í heimastofu að lokinni skólasetningu á sal.
Kl. 9:30 4.-5. bekkur, námskynning í heimastofu að lokinni skólasetningu á sal.
Kl. 10:30 6.-8. bekkur, námskynning í heimastofu að lokinni skólasetningu á sal.
Kl. 11:30 9. -10. bekkur, námskynning í heimastofu að lokinni skólasetningu á sal.
Kennsla hefst skv, stundatöflu þriðjudaginn 26. ágúst í öllum árgöngum kl. 8.30. Frístund opnar einnig þann dag en hægt er að sækja um fyrir nemendur í gegnum skráningarkerfið „Vala“, hlekkur á það er https://innskraning.island.is/?id=valais&path=%2fvala-fristund-vetur . Nauðsynlegt er að sækja um fyrir nemendur tímanlega.