NÝJUSTU FRÉTTIR

Verbúðin Snæló!
Nemendur á unglingastigi í náttúrufræðivali krufðu fiska eftir kúnstarinnar reglum á dögunum. Í boði voru þorskur, ýsa, steinbítur, keila og langa. Mikil sjálfbærni í gangi og tenging við grænfána verkefni skólans sem nemendur vinna eftir.

Úrslit stóru upplestrarkeppninnar
Hátíðarhlutar upplestrarkeppninnar í 7. bekk Snælandsskóla fóru fram á föstudaginn og í dag 14. mars. Ræktunarhlutinn hófst á degi íslenskrar tungu 16. nóvember og hafa nemendur verið að æfa upplestur reglulega síðan þá. Hátíðarhlutinn byrjar á árgangakeppni þar sem allir lesa […]

Gul veðurviðvörun
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun á höfuðborgarsvæðinu frá kl. 09:00-16:00 í dag. Mikilvægt er að foreldrar fylgist með nýjustu veðurspám á vedur.is þar sem þær geta breyst hratt án þess að þær verði uppfærðar á heimasíðu skólans. Við biðjum […]

Lesum saman korter á dag
Lokahátíð Lesum saman fór fram í sal skólans. Nemendur í 1. – 4. bekk fluttu atriði sem tengdust bókum Sigrúnar Eldjárn. Nokkrar bækur Sigrúnar voru kynntar með söng, endursögn og myndum.

Innritun í 1. bekk skólaárið 2022-2023
Innritun barna í grunnskóla sem fædd eru 2016 hefst 7. mars og lýkur 15. mars. Skráning fer fram í gegnum þjónustugátt Kópavogsbæjar.

Öskudagsgleði
Mikil gleði var í dag, öskudag, í öllum árgöngum skólans. Árgangar hittust í stofum hjá sínum umsjónarkennara þar sem var spiluð spil, farið í leiki, kahoot, Just Dance og annað sem nemendur vildu gera. Nemendur í 1. – 4. bekk fóru […]

Öskudagur
Á morgun er öskudagur og það er skertur dagur í skólanum skv. skóladagatali. Nemendur mega koma í búningi en ef einhver vopn eru hluti af búningnum þá þarf að geyma þau heima. Í hádeginu fá nemendur sem eru í mataráskrift hamborgara […]

Matseðill fyrir mars
Grænmetis- og ávaxtabar með öllum máltíðum Matseðillinn getur breyst án fyrirvara Matseðill. Mars 2022

Vetrarleyfi 17. og 18. feb
Minnum á vetrarleyfi sem verður fimmtudag og föstudag. Viljum þá benda á leiðsögn, listasmiðjur, föndur og bíó sem er á meðal þess sem verður í boði 17. – 19. febrúar í Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu og Bókasafni Kópavogs. Sjá dagskrá hér.

Á döfinni
Það er ekkert á döfinni