Nemendur í 9. bekk voru að vinna að verkefni í stærðfræði um himingeiminn í hópavinnu. Hluti af verkefninu var að leysa þrautir í gegnum „Breakout“ eða þrautalausnir sem byggir á að leysa flókin verkefni í gegnum margvíslega lása sem er leiðin að lausninni. Allt reyndi þetta á mikla samvinnu og rökhugsun.