Síðustu vikur hafa unglingarnir okkar verið að undirbúa sig fyrir keppnina, Sagan öll, undir stjórn Berglindar Bragadóttur kennara. Lokakeppni í spurningakeppninni fór fram í morgun. Tvö lið voru í úrslitum, í 10 bekk voru Atli, Vilhjálmur, Arnar, Markús og Stefán og í 9. bekk Dagur, Ellen, Hilmar, Hrafnhildur og Sigurður Sv .
9. bekkingarnir sigruðu keppnina. Innilega til hamingju!