Nemendum í 1. – 4. bekk ásamt umsjónarkennurum er boðið á kaffihúsið.
Unglingarnir lesa jólasögu fyrir gestina og bera fram kakó og engiferkökur
sem bakaðar hafa verið í heimilisfræði. Þetta er notaleg stund á aðventu.
Þetta er samvinnuverkefni heimilisfræði og skólasafns.