Leggjum línurnar

Í morgun fékk 10. bekkur í Snælandsskóla góða gesti í heimsókn. (Stjörnu) Sævar Helgi Bragason og Ríkey Hlín Sævarsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og viðburða á Náttúrufræðistofa Kópavogs, litu inn og ræddu um loftslagsmálin, sjálfbærni og leiðir til úrbóta.

Nemendur í 10. Bekk í átta af níu grunnskólum Kópavogs tóku nýverið þátt í verkefni Náttúrufræðistofunnar „Leggjum línurnar“  en það hlaut styrk úr Loftslagssjóði Rannís. Verkefnið er hannað fyrir 10. bekk grunnskóla og snýst í stuttu máli um að efla vitund ungmenna um loftslagsmál í víðu samhengi með samblandi af fræðslu og verklegum úrlausnarefnum þar sem unnið var með raunveruleg gögn á stórum og smáum skala.

Nemendur fengu innsýn í vísindaleg vinnubrögð og meðhöndlun gagna þar sem annars vegar var unnið með veðurgögn sem nemendur söfnuðu í nærumhverfi sínu og hins vegar aðgengileg gögn um veðurfar og loftslag erlendis frá.

Nemendum í 10.bekk í Snæló var skipt upp í sjö hópa og hver hópur tók fyrir loftslagsþróun í einu landi yfir langt tímabil og vann það yfir á form sem kallast loftslagslínur. Niðurstöðurnar voru á einn veg og komu skýrt fram í loftslagslínulitunum (sjá ljósm.)

Í lokin verða loftslagslínur allra 10. bekkinga í Kópavogi teknar saman og heildarmynd loftslagsbreytinga síðustu áratuga skoðuð á heimsvísu á samræmdu myndrænu formi. Leitast verður við að opna augu nemenda fyrir „stóru myndinni“ og samhengi hlutanna hvað loftslagsmál og loftslagsvána varðar, en ekki síður að valdefla þá og hvetja til eigin lausnaleitar og aðgerða.

Hægt verður að skoða verkefnið í húsnæði Náttúrustofu Kópavogs að Hamraborg 6a dagana 3. – 23. nóvember.

Heimasíðaverkefnisins:

https://natkop.kopavogur.is/vidburdir/vidburdir-a-menningarhusin-forsida/vidburdur/210/leggjum-linurnar-sersyning

 

Posted in Fréttaflokkur.