Nemendur í 4. bekk sýndu í vikunni söngleikinn Ávaxtakörfuna, sem fjallar um einelti og fordóma. Leikritið gerist í ávaxtakörfu þar sem allir ávextirnir eru kúgaðir af Imma ananas. Nemendur settu verkið upp með miklum metnaði og glæsibrag, og einkenndist sýningin af gleði og litadýrð.
Fjölmargir kennarar komu að undirbúningi og framkvæmd sýningarinnar: Margrét Thoroddsen tónmenntakennari, Cécile Parcillié, Aðalheiður Jóhannsdóttir og Díana Carolina. Áhorfendur voru nemendur skólans, börn af leikskólanum í Grænatúni, Álfatúni og Furugrund og fjölskyldur nemenda í 4. bekk.


