Puttaprjónarar

Nemendur í 4.bekk hafa undanfarið staðið sig einstaklega vel í puttaprjóni. Þessir fjórir tóku af skarið og hafa puttaprjónað í öllum sínum frístundum. Niðurstaðan var tæplega 90 metra löng lengja sem hér sést á myndinni fara nokkrum sinnum yfir íþróttasalinn! Þeir eru hvergi hættir og verður áhugavert að sjá hvort þeir komist yfir 100 metra múrinn.

Hlín Ólafsdóttir kennari

Posted in Fréttaflokkur.