Barnamenningarhátíð í Kópavogi 11. maí

Sögurnar lifna við í nýrri barnadeild bókasafnsins 11. maí  kl. 14:00 – 15:00

Krakkar úr Snælandsskóla spreyta sig á frásagnarlist fyrir gesti og gangandi í tilefni af Barnamenningarhátíð og opnun nýrrar barnadeildar bókasafnsins.

Fram koma Helgi Jónsson, Kristín Kata Sigurbjörnsdóttir og Magnús Vilhelm Pálsson (úr 5. bekk), Alexander Örn Valdemarsson, Inga Mjöll Pálsdóttir og Rúna Björg Þrastardóttir (úr 6. bekk) og Héðinn Halldórsson, Katrín Ólafsdóttir og Tómas Þór Elmarsson (úr 7. bekk).

Viðburðamyndin flotta er eftir Suheel Mahad Omar í 8. bekk í Snælandsskóla.

Leiðbeinandi er Hannah Rós Sigurðardóttir Tobin.

Sögufólkið unga býður upp á sögustund þar sem við sögu koma furðuverur og hversdagshetjur. Leynist kannski snákur undir steini eða álfur í fjalli? Sögurnar eru jafn ólíkar eins og þær eru margar: þjóðsögur, ævintýri eða alvöru atburðir úr lífi söguhetjanna.

Öll hjartanlega velkomin.

Posted in Fréttaflokkur.