Heilsudagurinn

Í dag var heilsudagur í skólanum. Árgangar innan stiga fóru saman milli stöðva og var dagskráin fjölbreytileg og áhersla á samveru og hreyfingu. Skipulagið gekk út á að vera 15 – 20 mínútur á hverri stöð. Stöðvahringurinn voru 6 stöðvar, samvinnu boðhlaup, Just dance (hreyfing í matsal), póstahlaup á gervigrasinu, boðhlaup, frjálst og frisbí í Asparlundi, Línuklukk í íþróttasal skólans og í íþróttasal í Fagralundi voru kaðlar, stinger, badminton og snú snú. Eftir það tók við hefðbundin kennsla samkvæmt stundatöflu.

Posted in Fréttaflokkur.