Jólakaffihús á bókasafninu

Í vikunni var nemendum í 1.-4. bekk ásamt umsjónarkennurum boðið á jólakaffihús á bókasafni skólans. Unglingarnir lásu jólasögu fyrir nemendur og báru fram kakó og engiferkökur sem bakaðar hafa verið í heimilisfræði. Þetta var notaleg stund á aðventunni. Þetta er árvisst samvinnuverkefni í heimilisfræði og bókasafni skólans undir stjórn Júlíu og Guðmundu.

 

Posted in Fréttaflokkur.