Hour of Code, forritað með vinabekkjum

Í dag var árlegt Hour of Code í skólanum þar sem forritað er með vinabekkjum í eina klukkustund. Eldri nemendur kenndu þeim yngri. Snælandsskóli skráir sig til þátttöku á hverju ári. Klukkustund kóðunar (Hour of Code) er ókeypis kynning á tölvunarfræði með skemmtilegum verkefnum og myndböndum fyrir nemendur á öllum færnistigum. Þetta árið höldum við upp á kóðun með áherslu á sköpun og gervigreind. Á síðunni https://hourofcode.com/us er hægt að velja um 45 tungumál. Til að einfalda nálgunina á þessum síðum þá höfum við notað námsvef Snælandsskóla til að vísa inn á síður sem tengjast viðburðinum. Hægt er að nálgast efnið áfram á síðunni www.namsvefur.weebly.com. Við hvetjum nemendur að fara inn á námsvef Snælandsskóla og nýta sér það frábæra efni sem þar er í boði fyrir nemendur til að forrita. Eftir klukkustund kóðunar sáu svo eldri nemendur um áframhaldandi samverustund með þeim yngri, þar sem spilað var á spil, föndraðar jólagjafir, perlað, farið í spurningakeppni, lesið og margt annað skemmtilegt gert. Virkilega vel heppnaður dagur.

 

Posted in Fréttaflokkur.