Upp, upp, upp, á fjall…..

Öflugur hópur nemenda á íþróttabraut undir leiðsögn kennaranna, Jóhönnu Hjartardóttur og Helgu Bjarkar Árnadóttur gengu upp á Úlfarsfell s.l. fimmtudag. Lítið útsýni var á toppnum en veður samt mjög milt og gott. Það verður spennandi að fylgjast með þessum hópi í vetur sem á eftir að fara í ýmsar ferðir tengdar útivist og íþróttum.

 

Posted in Fréttaflokkur.