Í morgun var jólafjör og jólahúfudagur á öllum stigum skólans. Meðal þess sem var á dagskránni var félagsvist, jólakortagerð, jólaföndur og margt fleira skemmtilegt.
Jólamatur og kræsingar voru á boðstólum fyrir nemendur og starfsfólk skólans. Boðið var upp á kalkún með góðu meðlæti og allir fengu ís í eftirrétt.
Jólatónlist og eintóm gleði ríkti meðal nemenda og starfsfólks á þessari notalegu aðventustund.

