Í dag var haldinn árlegur baráttudagur gegn einelti og gengið fyrir vináttu. Í fyrstu tveimur tímum dags voru bekkjarfundir í öllum árgöngum þar sem kennarar ræddu um einelti, eineltishringinn, eineltisreglurnar, afleiðingar eineltis og fyrirbyggjandi leiðir. Eftir frímínútur hittust vinabekkir fyrir utan skólann og elstu árgangar í leikskólunum Furugrund, Álfatúni og Grænatúni með verðandi vinabekk og gengu saman gegn einelti í dalnum. Eftir gönguna hittust vinabekkir og gerðu sitthvað skemmtilegt saman, spiluðu, föndruðu og margt fleira.