Það eru glaðir og áhugasamir nemendur í smiðjuhópnum í tíma hjá Ritu Madeil í heimilisfræði. Tímarnir hjá henni eru fjölbreyttir og skemmtilegir. Í þetta sinn gerðu þau bananabrauð sem vakti mikla lukku. Þau eru alltaf að læra eitthvað sem nýtist bæði í daglegu lífi og framtíðinni.