Rangoli-mynstur og stærðfræðilegt listaverk í sólskini

Nemendur í 5. bekk hafa undanfarið verið að vinna með mynstur í stærðfræði og fengu í leiðinni innsýn í rangoli-mynstur sem eru hluti af menningu og hefðum hindúatrúar. Í tilefni af góðu veðri fengu þau tækifæri til að skapa sín eigin litskrúðugu rangoli-mynstur á skólalóðinni í útikennslu. Lóðin skartaði því skemmtilegum og frumlegum listaverkum – sannkölluð blanda af sköpunargleði og stærðfræðilegri hugsun!

Posted in Fréttaflokkur.