Nemandi Snælandsskóla hlaut viðurkenningu í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs

Ljóðstafur Jóns úr Vör var afhentur við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi, þriðjudaginn 21. janúar 2025. Ljóðið Skeljar eftir Önnu Rós Árnadóttur hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör að þessu sinni en einnig voru veittar viðurkenningar í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs. Inga Bríet Valberg, nemandi í 6. bekk Snælandsskóla, fékk viðurkenningu fyrir ljóðið sitt Von. Hildigunnur Einarsdóttir og Guðrún Dalía Salómonsdóttir fluttu lög eftir Þorkel Sigurbjörnsson við ljóð Jóns úr Vör við athöfnina. Hljómsveitin Brek frumflutti einnig nýtt lag við ljóð Jóns úr Vör. Boðið var upp á léttar veitingar að athöfn lokinni.

 

Von

Ég hef komið til Himindals.

Þar sem gleði og friður dansa vals.

Fegurðin er stórkostleg,

ég held að þú hafir aldrei séð,

fegurð Himindals.

 

Jafnrétti það ríkir þar,

Í Himindal koma allar.

Friðardúfur á vorin.

Verið þið öll velkomin,

í okkar draumaland.

 

 

Posted in Fréttaflokkur.