Viðbrögð við jarðskjálfta

KRJÚPA – SKÝLA – HALDA

Innandyra: Við jarðskjálfta getur verið hættulegt að hlaupa út úr byggingu. Reyndu frekar að leita skjóls og vera kyrr á öruggum stað innandyra t.d. út  í horni við  burðarveggi fjarri gluggum. Ef þú er sofandi og vaknar upp við jarðskjálfta, haltu þá kyrru fyrir og notaðu  kodda til að verja höfuðið.  Ef það verður jarðskjálfti hafið þá eftirfarandi í huga:

Húsgögn: Varist húsgögn sem geta hreyfst úr stað.

Innihald skápa: Varist hluti sem detta úr hillum og skápum, sérstaklega í eldhúsi.

Ofnar og kynditæki: Haldið ykkur fjarri ofnum og kynditækjum sem hendast út af festingum.

Lyftur: Notið ekki lyftur og látið fara yfir þær eftir að jarðskjálfti hefur orðið þar sem lyftur skekkjast oft í jarðskjálfta.

Rúðubrot: Varist stórar rúður sem geta brotnað.

Byggingarhlutar: Við jarðskjálfta geta hlutar úr by ggingunni brotnað af. Haldi ykkur fjarri þeim stöðum í húsinu þar sem hætta er á hrynjandi byggingahlutum.

Gott er að setja á minnið orðaröðina:  KRJÚPA – SKÝLA – HALDA

Ekki hlaupa um stefnulaust innandyra, né hlaupa út í óðagoti.

RíkislögreglustjórI, Skúlagata 21, 101 Reykjavík, S:444 2500, Fax: 5622665, Netfang:almannavarnir@rls.is